Posted 3 months ago
1 note

1. Að gera fólk ósýnilegt

Þegar horft er framjá framlagi kvenna í umræðum, hvort sem er á opinberum vettvangi eða í persónulegum samtölum. Framkoman er til þess fallin að konum finnist framlag þeirra og skoðanir léttvægar og skipti ekki máli.

2. Að gera fólk hlægilegt

Þegar framlag kvenna í umræðum, hvort sem er á opinberum vettvangi eða í persónulegum samtölum er gert hlægilegt. Skoðanir þeirra jafnvel taldar byggja á tilfinningasemi eða kynbundnum líffræðilegum þáttum. Framkoman er til þess fallin að konur efast um gildi og réttmæti skoðana sinna og þora síður að setja þær fram.

3. Að leyna upplýsingum

Þegar konur hafa ekki sama aðgang að upplýsingum og karlar, hvort sem er á opinberum vettvangi eða í persónulegum samskiptum. Gerist á vinnustöðum, í stjórnmálum og í félagslífi. Karlarnir skiptast á mikilvægum upplýsingum í eigin óformlega hópi sem aldrei koma upp á yfirborðið á formlegum fundum og því standa konur höllum fæti í samskiptunum.

4. Tvöföld refsing

Þegar konum er legið á hálsi fyrir val sitt eða forgangsröðun í lífinu, bæði sem hópur, en einnig einstaklingar. Þá skiptir ekki máli hvert valið er, niðurstaða konunnar verður gagnrýnd hvort eð er. Velji kona t.d. að krefjast réttar síns er hún brjáluð, geri hún það ekki, getur hún sjálfri sér um kennt.

5. Að framkalla skömm og sektarkennd

Þessar velþekktu tilfinningar meðal kvenna eru framkallaðar m.a. með aðferðum 1-4.

Stundum nefni ég dæmi þegar ég rifja þessar aðferðir upp. Ég nenni því ekki núna. En ég ítreka mikilvægi þess að geta greint þessar aðferðir og bent á þegar þeim er beitt. Aðeins þannig komum við í veg fyrir að þær hafi áhrif.

  1. lilliendahl posted this